ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Jú, við fyrstu heyrn myndi ég telja afar líklegt að þetta auki þá áhættu. Og talandi um að þingmenn hafi almennt ekki gert sér grein fyrir því hvað felist í þessum orkupakka verð ég, þrátt fyrir að hæstv. utanríkisráðherra sé ekki hér, að taka fram að heimsókn hans um daginn til okkar olli mér vonbrigðum. Mér fannst einhvern veginn að utanríkisráðherra væri ekki nægilega búinn sjálfur í þessa umræðu.
Ef það er rétt ályktun hjá mér og ekki bara kvikindisskapur við hæstv. ráðherrann, sem ég ætla nú ekki að sé, þá segir það manni það — við höfum sagt að málið er flókið — að ef sá sem mælir fyrir þingsályktunartillögunni hér inni er ekki algjörlega með á áhrifunum sem innleiðing hennar hefur, utanríkismálanefnd og forysta hennar handvelur fólk til að taka á móti, vísar í handvaldar umsagnir til að þjóna sinni lund, segist hafa svarað öllum spurningum, sem er rangt, segist hafa velt við öllum steinum, sem er rangt — ég sé ekki heldur að þar sé að finna gaumgæfilega þekkingu á þessu máli.
Það er ekki svo að sá sem hér stendur telji sig hafa yfirburðaþekkingu á þessu máli, því að hann hefur það ekki. Hitt er svo annað mál að sú umræða sem staðið hefur hér undanfarandi hefur, held ég, dýpkað þekkingu allra sem að henni hafa komið á því hvernig þetta mál er vaxið. Það færir manni kannski heim sanninn um hversu misráðið það (Forseti hringir.) var af meiri hlutanum á Alþingi að ætla að keyra þetta mál í gegn án umræðu.