ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég ætla að halda áfram að reyna draga fram og varpa ljósi á mikilvægi þess að mál þetta sé skoðað heildrænt, þ.e. að ekki sé hægt að líta á þetta mál varðandi þriðja orkupakkann sem sjálfstæðan sérstakan hlut, heldur sé þetta ákveðið skref, partur af stóru og miklu ferli sem Íslendingar þurfa að taka ákvörðun um hvort þeir ætli að halda áfram að taka þátt í. Þetta ferli snýst reyndar um það fyrst og fremst að taka þátt í því að starfa eftir orkustefnu Evrópusambandsins, orkustefnu sem við komum ekki nálægt að móta — sem betur fer, segi ég, því að ef við myndum vera við það borð værum við eins og Evrópusambandið, sem er vitanlega ekki neitt spennandi.
En það sem ég hef hins vegar verið að velta fyrir mér eru nokkrar spurningar sem ég held að menn þurfi að skoða í þessu stóra samhengi. Ég hef velt því upp hvaða auknu völd eða breytingar verði á t.d. gerðum 72/2009 og reglugerð 714/2009, þar sem fram kemur í upplýsingum um fjórða orkupakkann að þetta verði uppfært. Það á að uppfæra þetta. Svo kemur reyndar ný reglugerð um áhættuviðbúnað, og þessi ACER-stofnun fær aukin völd og aukið hlutverk.
Ég fæ ekki skilið af hverju þingmenn eru ekki tilbúnir að skoða hvort heildarmyndin breytist, hvort samanlögð áhrif þriðja og fjórða orkupakkans séu með þeim hætti að við viljum staldra við núna, því að við gerum það ekki þegar búin að innleiða þetta, í ljósi þess að fjórði orkupakkinn er kominn fram. Það verða að teljast nýjar upplýsingar fyrir þingmenn og þingheim vegna þess að við höfum ekki fengið neina kynningu á því sem þarna er þó svo að það hafi verið í einhverju ferli úti í bæ, auk þess sem það er augljóslega komið í ljós að sá fyrirvari sem nefndur hefur verið varðandi lagningu sæstrengs er eingöngu til heimabrúks. Það kemur sífellt betur í ljós með hverjum deginum sem líður.
Það sem meira er, eins og ég benti á í andsvari við hv. þm. Þorstein Sæmundsson, er að undir er ekki bara einhver veiting á leyfum á landi, heldur snýr þetta líka að stjórnun og sameiginlegum reglum innan efnahagslögsögunnar og á landgrunninu.
En ég hef velt því fyrir mér hvort Ísland þurfi að fá undanþágur í þessum fjórða orkupakka, líkt og reynt var að sækja um í þriðja orkupakkanum, og þá frá hverju. Það held ég að sé býsna mikilvægt, því að ef það er áframhaldandi þróun á þeim greinum sem við höfum reynt að fá undanþágur frá en ekki fengið, er harla ólíklegt að hægt sé að fá undanþágu frá þeim þegar lengra er komið og mun líklegra að Evrópusambandið muni túlka málin þannig: „Jú, þið innleidduð þennan þriðja orkupakka með þeim hætti að ekki er ástæða til að fara að veita ykkur núna þá undanþágu sem þið gátuð ekki fengið á þeim tíma.“
Þannig að aukaspurningin er þessi: Er líklegt að það takist að fá undanþágur ef þetta er þróun á þeim gerðum sem við höfum viljað reyna að sleppa frá? Svar við því er auðvitað nei, það er ekki líklegt að það takist. Það eitt og sér, fyrir utan öll önnur álitaefni í þessu máli, ætti að vera þingmönnum umhugsunarefni hvort ekki þurfi að skoða hlutina í samhengi og velta fyrir sér hvað þetta skref þýði varðandi næstu skref sem við höfum tækifæri til að sjá í framtíðinni, enda hefur komið fram í umsögnum um málið, jafnvel hjá stuðningsaðilum þessa þriðja orkupakka, að sá næsti sé mun umfangsmeiri og setji meiri skyldur, kvaðir og kröfur á fyrirtæki og breytingar á markaði og þess háttar.