ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það sýnir glögglega sem hv. þingmaður hefur nefnt hér að mál þetta getur haft mjög víðtækar afleiðingar, í raun og veru miklu víðtækari en við höfum gert okkur grein fyrir þegar við tölum um efnahagslögsöguna og fiskimiðin, að landgrunnið er mögulega undir. Það þurfa að fást svör við því hvort þessir þættir séu undir. Þetta er eitt af þeim málum sem komið hafa fram á síðari stigum þessarar umræðu, sem sýnir hversu nauðsynleg umræðan er, og það er í raun og veru afar einkennilegt að hv. þingmenn skuli ekki taka þátt í umræðunni með Miðflokknum.
Mér er mikið til efs að meiri hluti þingmanna hafi sett sig inn í þetta mál. Ég hef sagt það hér og nefndi það fyrr í kvöld að mér teldist til að um 20 þingmenn hefðu ekkert tjáð sig um þetta mál, ekki neitt, ekki nokkurn skapaðan hlut. Engu að síður ætla þeir að styðja það af því að þeir eru hluti af þeim 52 þingmönnum sem rætt er um sem ætli að styðja þetta mál. Það sýnir alvarleika málsins að þegar jafn viðamiklir þættir og landgrunnið gætu hugsanlega orðið fyrir áhrifum held ég að málið sé komið á það stig að nú verði hv. þingmenn að taka sig á og setja sig inn í þetta mál. Það verður ekki aftur snúið. Það er kjarninn í þessu öllu saman. Það verður ekki aftur snúið þegar búið er að innleiða þessa tilskipun, ekki nema hreinlega að segja upp EES-samningnum. Við höfum ekki talað fyrir því. Það er rétt að taka það skýrt fram að Miðflokkurinn hefur ekki talað fyrir því að segja upp þessum samningi þó að það sé kannski margt sem mætti skoða að fara yfir, kosti og galla o.s.frv.