ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ef maður tekur það gott og gilt að fyrirvarinn gildi aðeins fyrir stjórnvöld en ekki ef kemur til þess að einhverjir aðilar hyggjast fara í lagningu sæstrengs má segja að það sé algerlega kýrskýrt að við höfnum þessum pakka og sendum hann aftur til EES-nefndarinnar samkvæmt 102. gr. samningsins. Það er svo einfalt í mínum huga.
Ég veit eiginlega ekki að hverju ég ætti að spyrja í seinna andsvarinu. Það væri kannski helst í sambandi við Orkustofnun, sjálfstæði hennar.
Nú er ACER hugsað sem einhvers konar ventill eða til að opna fyrir flöskuhálsa í samskiptum á milli þjóða þannig að ekki séu neinir hnökrar og í því felist sú hætta hjá þeim sem eru í andófi gegn þessum pakka að orkuverð hækki. En meðflutningsmenn málsins tala um að engin hætta sé á ferð því að Orkustofnun sé algerlega sjálfstæð og verði það áfram. Hefur þingmaðurinn ekki áhyggjur af því að það kunni að vera rangt, að sjálfstæði Orkustofnunar verði ekki eins og sagt er af málafylgjumönnum orkupakkans?