ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Í umræðunni hefur stundum verið talað um aðferð Evrópusambandsins við að fá þjóðir til liðs við sig, að fá þær til að taka við reglugerðum og tilskipunum, einni í einu. Hver um sig kann að hafa lítil áhrif. En eftir að hafa innleidd fjöldann allan af reglugerðum munu þessar þjóðir hafa selt sig undir yfirþjóðlegt vald sem erfitt er að losna undan. Ég kýs að líkja þessu við aðferðina þegar ungt barn er platað til að borða hafragraut. Þá er gjarnan sagt við barnið: Eina skeið fyrir pabba og eina skeið fyrir mömmu, eina skeið fyrir ömmu og svo eina skeið fyrir afa. Munurinn á grautnum sem gerir barninu gott og því að gleypa við innleiðingu einni í einu er sá að á endanum er líklegt að þjóðir verði komnar að því að kasta upp af öllum óþarfanum sem þær gleypa við. Það á við um þriðja orkupakkann, að gleypa við honum kann að virðast saklaust, en verkirnir sem við sem þjóð þurfum að fást við í framtíðinni í formi hærra orkuverðs, minni atvinnu og flótta fyrirtækja úr landinu, geta orðið óbærilegir.
Hér ætla ég mér að vitna í Arnar Þór Jónsson héraðsdómara, með leyfi forseta.
„Fyrirvarar sem stjórnvöld hyggjast gera einhliða vegna fyrirhugaðrar innleiðingar þriðja orkupakka Evrópusambandsins hér á landi í gegnum EES-samninginn munu enga þýðingu hafa komi til þess að fjárfestar vilji leggja sæstreng á milli Íslands og Evrópu.“
Verði það að veruleika að fjárfestar innlendir eða erlendir, sem líklegra er, geri þá kröfu að fá að leggja hingað sæstreng geta afleiðingarnar orðið hrikalegar. Það mætti kannski kalla það hamfarir. Hér yrði samkvæmt EES-samningnum að selja endurnýjanlega orku á sama verði og býðst á Evrópska efnahagssvæðinu, enda er það markmiðið með sameiginlegum innri markaði að svo verði. Við gætum staðið frammi fyrir því að fyrirtæki sem eru starfrækt hér á landi vegna góðrar samkeppnisstöðu landsins myndu flytja á brott, þá að sjálfsögðu vegna hækkandi raforkuverðs. Enda því skyldu fyrirtæki sem framleiða t.d. hrávöru eins og ál, stunda framleiðslu hér á landi langt frá sínum mörkuðum ef rafmagnið er selt á sama verði og á meginlandi Evrópu?
Hvað verður um öll gagnaverin? Ætli það færi ekki svo að þau flyttu á brott á jafn skömmum tíma og þau komu hingað til lands? Slík starfsemi er auðveldlega færanleg, og eðlilega vilja slík fyrirtæki vera sem næst framleiðendum þess búnaðar sem þau nota. Það gefur augaleið.
Þá stendur eftir spurningin: Hvers konar atvinnulíf viljum við hafa hér á landi? Við yrðum hráefnisframleiðandi þar sem orkan er hráefnið en ekki fullvinnsluframleiðendur.
Við lögðum á sínum tíma mikla áherslu á að fiskur yrði fullunninn hér á landi en ekki fluttur út. Það eigum við að sjálfsögðu að gera í orkunni líka. Við eigum alltaf að nýta hana hérlendis til framleiðslu enda skilar það mestum tekjum á endanum. Í því liggur virðisaukinn í framleiðslunni.
Við sköpum fjölbreytt störf fyrir háskólamenntaða og ófaglærða. Hagur þjóðfélagsins verður mestur á þann hátt. Þetta ber að taka alvarlega.