ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir spurningarnar. Ég er honum alveg sammála með hafragrautinn, en ég tók líka fram að munurinn á grautnum sem gerir barninu gott er annar en að gleypa innleiðingar þó að um sé að ræða eina og eina innleiðingu í einu. Ég er alveg sammála því að hafragrauturinn er hollur. Hann er örugglega hollari en þessi innleiðing þegar til lengdar lætur, enda borðaði ég mikið af hafragraut sem barn (Gripið fram í: Það sést.) og er stór og mikill. Drakk reyndar lýsi líka.
Eins og við höfum margoft sagt og erum sammála um er rétt að staldra við og horfa til framtíðar, til að sjá hvort það sé ekki betra að fara aðeins hægar í þessu, enda hefur það komið fram. Ég vitnaði í viðtal sem haft var við hæstv. iðnaðarráðherra síðasta haust. Hæstv. ráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sagði þá í því viðtali að það lægi ekki það mikið á, ekki væri nein hætta á ferðum þó að þessari innleiðingu þriðja orkupakkans yrði frestað til næsta hausts. Ég trúi ekki öðru en að hún sé sammála sjálfri sér í því enn þann dag í dag.
Talandi um reynslu mína af sjómennsku og því að hafa verið í útgerð er framtíðarsýnin þar oft að taka veðurspána og maður rær ekki ef hann spáir einhverri bölvaðri brælu, það er alveg á hreinu.