ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég er ánægður með samlíkingu hans þegar hann fjallaði um mikilvægi þess að við notuðum orkuna hér innan lands. Hann líkti því við mikilvægi þess að fullvinna fisk. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni. Það eru margfalt meiri verðmæti fólgin í því að fullvinna fiskinn hér heima. Þetta var skemmtileg samlíking til þess að einfalda málið og gera það vel skiljanlegt. Það er mikilvægt að setja málið fram með þeim hætti að almenningur skilji mikilvægi þess, hvað er hér á ferðinni, vegna þess að auðvitað eru innleiðingar, eins og í þessu tilfelli, orkupakki þrjú, tilskipun nr. 3 frá Evrópusambandinu, síður en svo einfaldar.
Það er heilmikið regluverk þarna á bak við og það þarf að koma skilaboðunum til almennings með einföldum hætti svo hann geti mótað sér afstöðu í þessu máli vegna þess að það er jú hið beina lýðræði að almenningur fái eitthvað um það að segja hvernig ákvarðanirnar eru teknar sem varða almenning, til frambúðar og inn í framtíðina, sem breytist ört í þessum efnum þegar kemur að raforkumálunum og umhverfismálunum og baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
En mig langaði að spyrja hv. þingmann: Er ekki alveg viðbúið að verði það raunin að héðan verði flutt út rafmagn gegnum sæstreng í framtíðinni muni iðnaður hér á landi lenda í samkeppni við rafmagn (Forseti hringir.) sem flutt er á meginlandið, að hann muni eiga undir högg að sækja?