149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:08]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann kom þarna inn á mjög athyglisverðan þátt sem hefur fengið allt of litla athygli hér. Hann nefnir að það sé auðveldara að fá lánafyrirgreiðslu í fiskvinnslunni ef fiskvinnslan fullvinnur fiskinn heima, ef ég skildi hv. þingmann rétt. Það er vegna þess að þá er verið að flytja út verðmætari vöru á verðmætari markað. Það má heimfæra á raforkufyrirtækin vegna þess að í umsögn HS Orku við þessa þingsályktunartillögu segir t.d. að þeir telji þetta mál jákvætt, m.a. vegna þess að það geti auðveldað fyrirtækjum á borð við HS Orku að leita eftir lánafyrirgreiðslu í stærri og fjárfrekari verkefni. Ef skil ég það rétt er í þessari umsögn verið að tala um að leita lánafyrirgreiðslu erlendis.

Þess vegna held ég að það snúist einmitt um að þá sé verið að framleiða verðmætari vöru, sem í þessu tilfelli er hin hreina raforka. Hún er þá flutt út um sæstreng. Þess vegna held ég að fyrirtæki á borð við orkufyrirtækin hér séu einmitt jákvæð gagnvart þessu verkefni af því að þau sjá fyrir sér þann möguleika, að geta í framtíðinni flutt orkuna út. Þá stofnum við iðnaðarfyrirtækjum hér heima í hættu með því að raforkan verður þá orðin dýrari til heimabrúks vegna þess að hægt er að selja hana miklu hærra verði í útlöndum.