149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:18]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna og þetta ágæta yfirlit yfir jarðvarmavirkjanir og hvernig þróunin hefur verið. Jarðvarminn og fallvötnin eru ómetanleg gæði sem Íslendingar búa yfir. Þetta eru verðmæti á margan hátt. Við getum framleitt rafmagn úr því. Við hitum húsin okkar. Þetta er atvinnuskapandi o.s.frv. Þar af leiðandi þarf enginn að vera hissa á því að stjórnvöld annarra ríkja og jafnvel einstaklingar og fyrirtæki renni hýru auga til Íslands þegar kemur að því að nýta eða ná sér í þessa grænu orku.

Hv. þingmaður hefur einnig fjallað í ræðum sínum um þann fyrirvara sem átti að vera á þessu öllu saman. Nú hefur komið í ljós að a.m.k. fjórir lögmenn, ef ekki fleiri, hafa fjallað um að þessi fyrirvari sé í rauninni lítils virði þegar kemur að því að einkaaðilar vilji fara í útflutning á raforku og framleiðslu. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi nokkurs staðar séð að einhvers staðar sé undanskilin einhver tegund orkuvinnslu sem gæti mögulega fallið utan fyrirvarans eða innan hans. Ég hef skilið þetta þannig að þetta sé almennur fyrirvari og gildi í rauninni bara gagnvart stjórnvöldum hér á Íslandi, eða Alþingi í rauninni, en vilji einkaaðili framleiða orku t.d. úr jarðhita, eða vilji fyrirtæki leggja sæstreng með öðrum einkaaðilum, þá sé nokkuð ljóst samkvæmt þessum fjórum lögmönnum að Orkustofnun (Forseti hringir.) eða íslenska ríkið getur ekki komið í veg fyrir slíkt.