149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:32]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég held að mjög mikilvægt sé einmitt að ræða þennan þátt málsins, þ.e. skort á því að rætt sé ítarlega um hugsanleg umhverfisáhrif þessarar þingsályktunartillögu um innleiðingu á þriðju orkutilskipun Evrópusambandsins hér á landi. Eins og hv. þingmaður nefndi hafa verið í farvatninu rannsóknir á djúpborunum og ljóst er að það er liður í því að auka framleiðslu þessara fyrirtækja. Ef maður skoðar þær greinar sem ég sá í erlendum miðlum um að hér séu verkefni í gangi, djúpborunarverkefni sem hafa fengið styrki erlendis frá til að kanna möguleika á því að fara í boranir og talað er um allt að 4,7 km, þetta getur haft gífurleg áhrif, eins og t.d. á Reykjanesi. Hvaða áhrif hefur það á núverandi orkuframleiðslu? Getur hún verið í hættu? Þetta er allt efni sem þarf að rannsaka.

En ég held nefnilega að málið sé það, herra forseti, að við þurfum að fá umhverfisráðherra í þessa umræðu vegna þess að umhverfisþátturinn hefur nánast ekkert verið ræddur í þessu samhengi. Verði þessi tillaga samþykkt er alveg ljóst að hún er undirbúningur að miklu stærra skrefi sem verður að selja raforkuna úr landi til Evrópu og það mun auka á framkvæmdir hér á landi, hugsanlegar djúpboranir o.s.frv. Þetta er umhverfisþáttur sem við verðum að ræða mun nánar í þessu samhengi, herra forseti.