ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég tók eftir þessum sömu fréttum og þeirri umræðu sem hv. þingmaður fór yfir varðandi verðlagningu Landsvirkjunar á raforku. Mig langar aðeins að vita hvort hv. þingmaður geti rifjað það upp með mér, eða er það ekki rétt munað, að fyrir nokkru síðan endurskoðaði fyrirtækið verðlagsstefnu sína og tók upp einhver ný viðmið sem tækju mið af orkuverði í Evrópu, ef ég man rétt. Nú velta menn fyrir sér hvort skynsamlegt sé að gera það þar sem orka er væntanlega framleidd með mun dýrari hætti en hér á landi og flutt um lengri veg, jafnvel flutt inn frá öðrum ríkjum o.s.frv., og hvort það sé þá ekki hætta, ef þetta eru markmið fyrirtækisins, að vera bara á sama stað verðlega séð og önnur lönd, hvort sem það er Evrópa eða segjum Kanada eða eitthvað slíkt, að verið sé að gefa eftir samkeppnisforskot eða ákveðið forskot sem Ísland á að geta haft í það minnsta.
Þá veltir maður líka fyrir sér án þess að vera með einhverjar samsæriskenningar endilega. Nú vitum við að innan Landsvirkjunar hefur verið mikill áhugi á að skoða sæstreng, flytja út orku, en það er svolítið sérstakt að á sama tíma og fyrirtækið er að skoða það virðist það vera að breyta stefnu sinni í þá átt að geta flutt út rafmagn og selt það á verði sem er sambærilegt og í Evrópu, en vissulega með græna umhverfisvæna orku. Er þetta (Forseti hringir.) svo langt frá veruleikanum sem ég er að hugsa um, hv. þingmaður?