149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:44]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að hv. þingmaður hafi einmitt komið að kjarna málsins. Það lítur út fyrir að framtíðaráformin hjá þessum fyrirtækjum, eins og Landsvirkjun, séu að selja þessa hreinu orku hæstbjóðanda. Það mun verða á Evrópska efnahagssvæðinu. Það er alveg ljóst. Þess vegna kemur það mér ekkert á óvart að þetta fyrirtæki sem landsmenn eiga skuli hafa verið fylgjandi innleiðingu orkupakka þrjú í umsögn sinni. En það sem er kannski aðalatriðið í mínum huga hvað þetta varðar er að menn verða að gera sér grein fyrir hverjar afleiðingarnar geta orðið. Er það kannski bara stefna stjórnvalda að koma stóriðjunni, þessum fyrirtækjum sem veita fjölmörgum atvinnu, úr landi? Það er það sem maður veltir fyrir sér vegna þess að ýmis kostnaður fylgir því að vera langt frá mörkuðum o.s.frv.

Það er alveg hugsanlegt, eins og hv. þingmaður nefndi, það gæti verið hagstæðara fyrir þessi fyrirtæki þegar upp er staðið, þegar búið verður að hækka raforkuverðið til þessara fyrirtækja, að þau flytji starfsemi sína nær mörkuðunum, t.d. í Evrópu. Þetta eru allt sjónarmið sem við verðum að ræða og fara yfir vegna þess að mjög mikið er í húfi.

Ég held að það sé ákaflega vafasamt af þingmönnum, sumum hverjum, sem hafa núna fagnað orkusamningi við Elkem að nú sé stóriðjan loksins farin að borga verð sem hún á að borga (Forseti hringir.) þegar niðurstaðan verður kannski eftir tvö, þrjú ár sú að fyrirtækið verður bara ekki rekstrarhæft. Þetta er eitthvað sem þarf að skoða. (Forseti hringir.) Allir þessir hagsmunir skipta máli í því sambandi.