149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:54]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég deili þessum áhyggjum með honum um það hvernig stjórnmálamenn, margir hverjir, líta stóriðjuna hornauga. Ég minni á að stóriðjan skipti okkur sköpum í hruninu við að byggja upp atvinnulífið að nýju og efnahagsmálin, þannig að hún er okkur mikilvæg. Þess vegna er það undarlegt að þingmenn skuli fagna því hér sérstaklega að það sé mikil hækkun á verði raforku til stóriðju. Að sjálfsögðu á stóriðjan að borga sanngjarnt raforkuverð, en við megum hins vegar ekki verja verðleggja okkur út af markaðnum, eins og oft er sagt.

Ég held að menn geri sér ekki grein fyrir því hverjar afleiðingarnar gætu orðið ef fyrirtæki á borð við Elkem á Grundartanga sæi sér ekki lengur fært að greiða það raforkuverð sem sett er upp og myndi á endanum leggja niður starfsemi sína.

Þetta er áhyggjuefni sem verður að skoðast í ljósi þessarar þingsályktunartillögu, vegna þess að eins og oft hefur komið fram leggur þessi tillaga grunninn að því að við verðum á þessu sameiginlega markaðssvæði. Það er svo margt sem bendir til þess að orkuframleiðslufyrirtæki á Íslandi séu að undirbúa sig fyrir að selja orku um sæstreng. Þá geta þessi fyrirtæki verið í hættu og þau (Forseti hringir.) fjölmörgu störf sem þau veita.