149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:56]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Eins og komið hefur fram virðist núverandi forstjóri Landsvirkjunar vera mjög hlynntur þriðja orkupakkanum. Við höfum okkar kenningar um það og höfum raunar fært rök fyrir því að það sé tengt sérstökum sæstrengsáhuga forstjórans og þar með fyrirtækisins nú um stundir. En sú var tíð að Landsvirkjun lagðist gegn raforkutilskipunum Evrópusambandsins, til að mynda árið 2002 þegar stóð til að innleiða aðra raforkutilskipunina. Það er mjög fróðlegt að líta hér í frétt um þau áform þar sem vitnað er í Einar Odd Kristjánsson heitinn, sem var nú síður en svo afturhaldssamur þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en hann var á þeim tíma varaformaður fjárlaganefndar þingsins. Í fréttinni segir, með leyfi forseta:

„Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar þingsins, bendir á að ýmsar athugasemdir hafi verið gerðar við frumvarpið, m.a. hafi komið fram athugasemdir frá Landsvirkjun og Rafmagnsveitu ríkisins. „Menn hafa af eðlilegum ástæðum efasemdir um það að til virkrar samkeppni geti komið í dreifbýli Íslands,“ útskýrir hann. Hann segir að menn hafi einnig horft til þess að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir mjög flóknu eftirlitskerfi, sem menn óttist að verði dýrt í framkvæmd. „Einnig hafa menn efasemdir um það hvernig staðið verði að þeirri jöfnun á raforkukostnaði sem lögð er til …““

Herra forseti. Er þetta ekki bara enn eitt dæmið um að við gætum svo hæglega lært af reynslunni? Meira og minna allar þessar viðvaranir sem komu fram um aðra raforkutilskipunina reyndust á rökum reistar, urðu að raunveruleika. Hér er Landsvirkjun greinilega að vara við þessari innleiðingu, ekki hvað síst vegna þess að fyrirtækið óttast að erfitt (Forseti hringir.) muni reynast að viðhalda virkri samkeppni í dreifbýli landsins.