ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu vegna þess að það er mjög mikilvægt að halda þessu til haga að það sem hv. þingmaður rekur þarna í umsögn Landsvirkjunar, ef ég heyrði rétt, við orkupakka eitt og tvö, þegar verið er að innleiða þá, er neikvætt. Og það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að það hefur gengið eftir og gerði það bara nánast um leið og sú innleiðing varð að veruleika, þá fór landsbyggðin halloka. Flutningur á raforku hækkaði verulega. Landsbyggðin hefur þurft að blæða fyrir það. Ýmsir sérsamningar voru bannaðir, þar á meðal sérstakar niðurgreiðslur til húshitunar á ákveðnum svæðum. Þannig að það hefur allt saman gengið eftir.
Þess vegna spyr maður sjálfan sig: Hvers vegna í ósköpunum eru þessi stóru fyrirtæki hlynnt innleiðingu þessa þriðja orkupakka? Það hlýtur að vera sú ástæða að þeir sjá tækifæri til þess að selja orkuna úr landi og hafa þar af leiðandi ekki áhyggjur af hag heimilanna og fyrirtækjanna í landinu, sem er náttúrlega mikið áhyggjuefni. Auðvitað á fyrirtæki eins og Landsvirkjun að hugsa um hag landsmanna hvað þetta varðar. Þetta eru fyrirtæki í eigu landsmanna og það á fyrst og fremst að huga að hag heimilanna, eins og t.d. einn ágætur maður, Kári Stefánsson, hefur skrifað greinar um, að það eigi að selja raforkuna til heimilanna á kostnaðarverði, það séu lífsgæði sem Íslendingar eigi að búa að.