ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og fyrir að fara yfir álit fyrrverandi ráðherra og alþingismanns og guðföður þessa samnings, EES-samningsins, sem ég vil gjarnan kalla svo, Jóns Baldvins Hannibalssonar. Það er svolítið merkilegt hvernig sá einstaklingur og reyndar fleiri sem hafa komið nálægt þingstörfum og eru af eldri kynslóðinni í þessu öllu saman sjá hætturnar í þessum orkupakka sem er til umræðu.
Eitt af því sem hefur verið gagnrýnt er einmitt það sem hv. þingmaður las upp úr álitinu, að verið sé að fresta því að taka á þessum stjórnskipulegu álitaefnum. Um leið og við erum að ræða þennan þriðja orkupakka, ræða það hvort eigi að fresta þessum stjórnskipulegu álitaefnum, erum við komin með upp á yfirborðið og öllum ljós sem vilja skoða, fjórða orkupakkann. Er ekki ástæða til að velta upp hvort í honum felist líka stjórnskipuleg álitaefni? Eða er hugmyndin kannski að fresta því að taka á þeim næstu árin og bíða eftir því að fjórði orkupakkinn verði í sölum Alþingis að gera alla gráhærða yfir valdaframsali og mögulegum stjórnarskrárbrotum? Er mögulegt að menn ætli bara að fresta þessu og taka þetta allt í einu lagi? Það er algjörlega galið því að samt sem áður er verið að innleiða reglurnar, það er verið að innleiða markmiðin og stefnuna sem er í boði. Því spyr ég hv. þingmann hvort það sé ekki rétt í ljósi þess og í rauninni vegna þess að þetta er nýlega orðið staðfest og komið fram — það var í síðustu viku, á miðvikudaginn, að fjórði orkupakkinn var klár í Evrópusambandinu — að gefa þingmönnum færi, þótt ekki væri nema fram á haustið að fara í gegnum þetta mál allt saman sem eina heild.