149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:21]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Herra forseti. Þessi athugasemd hæstv. forseta var besta athugasemd sem nokkur forseti þingsins hefur komið með í seinni tíð, a.m.k. í þessari umræðu, og vekur okkur vonir, okkur áhyggjufullum þingmönnum, til að mynda mér og hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni, því að ég hafði talið mig vera að koma hingað upp til að tilkynna hv. þingmanni að því miður þyrfti ég að valda honum vonbrigðum, að ég óttaðist að gamli góði Sjálfstæðisflokkurinn, eins og hv. þingmaður lýsti honum, kynni að heyra sögunni til.

Ég las grein eftir hv. formann utanríkismálanefndar í Morgunblaðinu í dag þar sem því var haldið fram að hlutir sem taldir hefðu verið góðir og gildir í gamla daga hjá flokknum væru það ekki lengur. Að öðru leyti hafði framlag hv. formanns utanríkismálanefndar til umræðunnar einkum fólgist í því að mæta í sprellþátt í ríkissjónvarpinu og tísta, m.a. um ræðu hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar.

Ég veit ekki hvort hæstv. forseti getur upplýst mig um hvort þetta sé kannski að vera nútímalegur stjórnmálamaður. Má ég þá frekar biðja um gamaldags Sjálfstæðismenn, a.m.k. stjórnmálamenn sem eru tilbúnir að skoða málin ofan í kjölinn, kynna sér staðreyndirnar og líta til ábendinga frá þeim sem best þekkja til en taka svo ákvörðun sjálfir, taka ákvörðun og bera á henni ábyrgð, fremur en að vísa í að þeir séu einfaldlega að framfylgja faglegu mati einhverra annarra án þess þó, eins og í þessu tilviki, að skoða allt hið faglega mat.

Ég kom hingað upp til að valda hv. þingmanni vonbrigðum, en nú spyr ég hv. þingmann: Hefur ekki glæðst ný von?