ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Það er ekki ætlan mín að koma forseta í vandræði þar sem ég veit að hann er þess ekki umkominn að taka þátt í umræðu í þingsal meðan hann situr á hástóli sínum. Ég hvet hann hins vegar til þess að gera það þegar hann stígur niður af stólnum á eftir. En það er önnur saga.
Þetta er ekki í fyrsta skipti, hv. þingmaður, sem þessi hæstv. forseti vekur mér von. Hann hefur áður gert það með orðum sínum, látæði og framkomnu. Nú man ég reyndar ekki númer hvað þessi ræða er, ég var reyndar ekki búinn að lesa þetta tíst hjá hv. formanni utanríkismálanefndar en ég sá það einhvers staðar og ég man að hún var eitthvað að velta fyrir sér númerinu á ræðunni sem flutt var þann daginn. En þessi ræða mín núna er vonandi efni í tíst fyrir hv. þingmann, hv. formann utanríkismálanefndar, með því að svara spurningunni sem ég bar upp áðan: Var þingmönnum Sjálfstæðisflokksins gerð grein fyrir þessum viðvörunum og öðrum áður en þeir samþykktu að þetta mál skyldi lagt fram í þeirri mynd sem það er í núna?
Ég heyri það á hæstv. forseta að það er málum blandið og ég gleðst vegna þess að það segir mér að þrátt fyrir allt eru í þingliði Sjálfstæðisflokksins enn menn af þeirri sort sem þar voru fyrrum, varkárir og yfirvegaðir menn sem vilja taka ákvarðanir á grundvelli bestu gagna. Þetta mál er svo stórt, eins og fram hefur komið, og það er ekki hægt að kasta til höndunum við afgreiðslu þess. Það er bara ekki hægt. Það er ekki verjandi fyrir nokkurn einasta mann. Þess vegna verðum við, herra forseti, allir þingmenn, ekki bara þingmennirnir sem eru hér nú og andæfa í hógværð (Forseti hringir.) þessum málatilbúnaði, heldur verða þingmenn allir að bregðast við, taka ábyrgð á þessu máli og afgreiða það með sóma.