149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:26]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Hæstv. forseti. Þetta kom mér aðeins á óvart því ég hélt að hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson væri næstur í ræðustólinn, hafði séð það á netinu, en ég skal glaður flytja forseta fregnir af orkupakka þrjú.

(Forseti (BN): Hv. 3. þm. Norðaust. kemur alltaf aftur.)

Hæstv. forseti. Nú er farin hálf mínúta í þetta en höldum áfram, gerum ekki mál úr því. Í flýtinum gleymdi ég náttúrlega spurningalistanum mínum en ég held að ég muni hann að einhverju leyti. Ég held áfram í það minnsta að velta upp spurningunni sem ég hef áður borið fram og ég vona í einlægni að einhverjir af þeim þingmönnum sem eru fylgjandi málinu og eru að hlusta geri sér far um að svara henni.

Ég kíkti á viðverulistann áðan og eftir því sem stendur á skjánum vantar a.m.k. fulltrúa tveggja flokka í salinn. Kannski eru þeir á skrifstofum sínum, ég veit það ekki, en það er enginn frá flokkunum Viðreisn og Flokki fólksins. Ég man ekki betur en að þeir flokkar eða fulltrúar þeirra hafi einmitt gert athugasemdir við að þingmenn væru ekki í þingsal á vinnutíma. Það er því spurning hvort forseti gái að því hvort það sé ekki örugglega einhver vakandi af því ágæta fólki. En mér er svo sem sama.

Virðulegur forseti. Ég kom inn á mál sem er býsna mikilvægt að mínu viti, tengist umræðunni sem ég er búin að vera að fjalla um og reyna að höfða til þess að stjórnarþingmenn komi upp og svari nokkrum spurningum varðandi heildarmyndina, sem er orkustefna Evrópusambandsins, sem felur í sér innleiðingu á fyrstu og annarri orkutilskipun, orkupakka þrjú og orkupakka fjögur.

Nú er það orðið ljóst að innleiðing sameiginlegu reglnanna, þ.e. gerð 72/2009, takmarkast ekki við land eða ekki við orkuvirki á landi eða tengingar á landi, heldur snýr þetta líka að efnahagslögsögunni og landgrunninu. Ég velti því upp hvort fylgismönnum málsins hafi verið ljóst að þetta sé svona. Þetta gerir stöðu Íslands enn þá erfiðari ef til þess kemur að einkaaðili höfðar mál á hendur íslenska ríkinu eða Orkustofnun eða einhverju til þess bæru stjórnvaldi sem hyggst koma í veg fyrir að viðkomandi leggi sæstreng til að flytja eigin orku eða orku sem hann kaupir af einkaaðila eða öðrum aðilum úr landi.

Þetta er mikilvægt í mínum huga og ber að sjálfsögðu að skoða í samræmi við það sem koma skal vegna þess að 72. gerð er talin upp í fjórða orkupakkanum sem gerð sem mun taka breytingum í þeim pakka. Það á sem sagt að uppfæra hana og við höfum ekki fengið að vita hver sú uppfærsla er.

Þess vegna er svolítið kjánalegt að ætla að fara að samþykkja þá gerð og grein á sama tíma og við vitum að hún er að fara að breytast og skoða ekki hver breytingin verður.

Ég velti því fyrir mér, herra forseti, hvort óhætt sé að segja að þetta sé óábyrgt?

Það leiðir mig enn og aftur að því að reyna að átta mig á því hvað vakir fyrir þessum ágætu þingmönnum. Ég geri mér alveg grein fyrir því að samfylkingarflokkarnir báðir vilja drífa þetta af vegna þess að þá langar svo óskaplega inn í Evrópusambandið en að stjórnarflokkarnir sem fram til þessa hafa ekki verið talsmenn þess að ganga í Evrópusambandið, nema kannski einhver hluti Sjálfstæðisflokksins og reyndar innan Vinstri grænna líka, held ég, þetta kann eitthvað að breytast, það er alltaf að breytast, skuli ekki vilja skoða þetta skil ég ekki. Það hefur enginn stjórnarþingmaður ómakað sig við að koma í ræðustól og útskýra fyrir mér eða öðrum þingmönnum hvers vegna þetta er ekki skoðað á þennan hátt, hvers vegna menn líta einfaldlega svo á að þetta skipti (Forseti hringir.) ekki máli. Hvað er það sem vakir fyrir mönnum?