149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:32]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég vildi koma aðeins nánar inn á það sem hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson fjallaði um. Ég ætlaði reyndar að fara í andsvar við hv. þingmann en það hefur eitthvað misfarist og ég deili ekki við forseta um það.

En það sem vekur athygli varðandi þessar nýjustu fréttir er að nánast daglega, bara síðustu daga, berast fréttir sem tengjast þessu máli. Við sáum fréttir sem bárust af undirbúningi sæstrengs, að því virðist, samkvæmt breska blaðinu The Times, sem er virt blað þar í landi, um að breskur auðkýfingur væri búinn að fullfjármagna, eða svo gott sem, lagningu sæstrengs, þ.e. að fjármögnun væri tryggð við lagningu sæstrengs hingað til lands, sem myndi skapa mörg atvinnutækifæri í Bretlandi. Þar eru nefndir til sögunnar um 25 fjárfestar og stór banki, sem kæmi einnig að þessu, bandaríski bankinn J.P. Morgan. Þannig að það er alveg ljóst að það mál er komið mjög langt á veg og breytir umfjölluninni í þinginu þó nokkuð að mínu mati. Það verðskuldar umræðu, vegna þess að því hefur verið haldið fram hér að sæstrengur sé ekkert á leiðinni, við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur af því, það hafi enga þýðingu að samþykkja þennan orkupakka o.s.frv.

Síðan kom athyglisverð grein frá fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, Þorsteini Pálssyni, sem nefnist: „Rétt að setja fulla aðild aftur á dagskrá.“ Þá á hann við aðildarumsókn að Evrópusambandinu og færir rök fyrir því að núna séu komnar upp þær aðstæður í tengslum við þriðja orkupakkann, að þar sem við tökum þessi skref þýði það í raun og veru að við séum að fara inn á innri markaðinn hjá Evrópusambandinu með því að innleiða þessar orkureglur, og þá veikist rökin gegn fullri aðild verulega, eins og hann segir í sinni grein.

Þetta eru mjög athyglisverðar fréttir og daglega berast nýjar fréttir. Maður veltir því fyrir sér hvort það sé virkilega svo að það sé að verða stefnubreyting hjá t.d. Sjálfstæðisflokknum um að skoða eigi aðild að Evrópusambandinu.

Það er nokkuð sem vekur verðskuldaða athygli og maður leggur nú yfirleitt við hlustir þegar fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, Þorsteinn Pálsson, kemur fram á ritvöllinn. Í þessu tilfelli hefur hann blandað sér inn í umræðuna með afgerandi hætti. Það víkur að því að þar sé eitthvað á bak við sem við vitum ekki nákvæmlega um, einhverjar forsendur, hagsmunir sem ekki hafa verið kynntir til sögunnar og þess vegna sé verið að keyra þetta mál í gegn. Það er náttúrlega augljóst mál þegar kemur að Samfylkingunni og Viðreisn, eins og hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson kom inn á áðan, að það eru flokkar sem vilja aðild að Evrópusambandinu og þeir samþykkja allt sem þaðan kemur. Mig minnir að Samfylkingin hafi verið búin að lýsa yfir stuðningi við þetta verkefni, við þessa innleiðingu, án þess að hafa kynnt sér gögn málsins (Forseti hringir.) eða þingskjölin.

En þetta er athyglisvert mál sem ég vil koma nánar að því á eftir, herra forseti, og óska eftir að verða settur aftur á mælendaskrá.