149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:38]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Forseti hvetur hv. þingmenn til að gefa merki tímanlega innan fimm mínútna ræðutíma ef þeir finna sig knúna til að fara í athugasemdir eða í andsvör við meðflokksmenn sína eftir öll þessi fundahöld, sem eru nú orðin vel á annað hundrað klukkustundir að lengd.

Tveir hv. þingmenn hafa óskað eftir að veita andsvör. (ÞorS: Þrír.)Þrír. (Gripið fram í.) Já, þá er rétt að rifja upp reglurnar. Aldrei er góð vísa of oft kveðin. En þá gildir sú regla að tími er styttur í eina mínútu í seinni umferð.