149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:44]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég held að hv. þingmaður hafi komið með mjög athyglisverðan punkt, að liðka fyrir því að við færum inn í Evrópusambandið. Ég held að það geti mjög vel átt við rök að styðjast vegna þess að innleiðing þessa orkupakka felur í sér að þegar skrefið verður stigið til fulls er komið þetta yfirþjóðlega vald yfir orkumálum okkar, þ.e. orkustofnun Evrópusambandsins, ACER, kemur til með að stjórna þessum málum, ekki við. Þess vegna séu komin rök fyrir því að við séum komin svo langt inn í regluverk Evrópusambandsins að tímabært sé orðið að við höfum áhrif í þeim efnum og það gerist með því að við gerumst aðilar að Evrópusambandinu. (Forseti hringir.) Ég held að þetta sé mjög athyglisverður punktur hjá hv. þingmanni.