ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta er mjög áhugaverð spurning hjá hv. þingmanni og ég þakka honum andsvarið. Gætum við verið að horfa upp á stefnubreytingu Sjálfstæðisflokksins gagnvart Evrópusambandinu?
Það er alveg ljóst að flokkurinn er klofinn í afstöðu til þessa máls og fyrrverandi formaður flokksins, Þorsteinn Pálsson, og fyrrverandi forsætisráðherra, leggur út frá því að þarna sé komin leið til að reyna að ná sáttum innan flokksins, þ.e. sjálfsagt myndi flokkurinn leggja áherslu á að það yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um að hefja aðildarviðræður að nýju og það væri kannski leið fyrir flokkinn að reyna að höfða til grasrótarinnar og sýna það að flokkurinn leggur áherslu á beint lýðræði o.s.frv.
En ef maður skoðar þessa grein fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins kemur margt fram í henni sem er athyglisvert. Þar talar hann t.d. um jákvæða gerjun í evrópskri pólitík og nefnir að hrakspár um það að evran myndi líða undir lok o.s.frv. hafi ekki gengið eftir og ekki sú upplausn Evrópu sem margir hafa talað fyrir. Hann telur upp þá jákvæðu þætti.
En varðandi spurningu hv. þingmanns er það mjög fróðlegt rannsóknarefni hvort það sé að verða stefnubreyting hjá Sjálfstæðisflokknum, a.m.k. (Forseti hringir.) kemur verulega á óvart hversu ríka áherslu þeir leggja á að innleiða þennan orkupakka, sem er jú þegar upp er staðið valdaframsal.