149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:52]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Kjarni þessa máls er að hér er verið að innleiða regluverk Evrópusambandsins sem gengur lengra en við höfum áður séð, þ.e. við erum að leggja grunninn að því að taka þátt í þessu sameiginlega markaðssvæði á afgerandi hátt. Fyrri orkupakkar voru markaðssetning raforkunnar hér á landi, uppskipting á fyrirtækjunum o.s.frv., en núna á að stíga skrefið til fulls. Ég skil alveg röksemdafærslu fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins, Þorsteins Pálssonar, hvað það varðar. Það er hægt að færa rök fyrir því að við séum komin svo langt að nú verðum við að fara að hafa áhrif á framvindu mála innan Evrópusambandsins og það gerum við með aðild. (Forseti hringir.)

Það er verið að taka eitt og eitt skref til að rökstyðja það að í augum þessara Evrópusinna er á endanum kannski bara best að vera (Forseti hringir.) innan sambandsins.