149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:06]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Ein rökin fyrir því að við teljum að það þurfi að skoða þetta mál betur er sú staðreynd að fyrir liggur að orkupakki fjögur hefur verið afgreiddur í Evrópusambandinu, þannig að innihald hans og áhrif ætti að vera hægt að rannsaka og skoða.

Eðlilega vakna ýmsar spurningar við það og ekki hefur fylgjendum málsins tekist eða þeir ekki haft vilja til að koma upp og svara spurningum. Ein af þeim spurningum sem ég hef hent fram er hvað það þýði að breyta eigi eða uppfæra völd svokallaðrar ACER-stofnunar. Mun það hafa þýðingu hérna heima? Mun það hafa þýðingu varðandi hlutverk Orkustofnunar, svo dæmi sé tekið? Hvaða áhrif mun það hafa á almenn fyrirtæki sem sýsla með orku og falla að einhverju leyti undir þá skipun?

Annað er nefnt í orkupakka fjögur og það er áherslan á orkunýtni bygginga. Eitt af því sem fram kemur, ef mig misminnir ekki, í umsögn Samtaka iðnaðarins, eru einmitt nokkrar áhyggjur af þeirri þróun sem kann að vera innan Evrópusambandsins og hvetja menn til að hagsmunum Íslands sé sérstaklega haldið á lofti í tengslum við þann þátt vegna okkar stöðu varðandi jarðhita og þess háttar.

Ég spyr hv. þingmann hvort þetta séu ekki einmitt enn ein rökin fyrir því að skoða þetta mál betur, m.a. út frá varnaðarorðum Samtaka iðnaðarins, sem eru reyndar sammála innihaldinu í orkupakka þrjú, svo það sé tekið fram. (Forseti hringir.) En nú höfum við þennan fjórða fyrir framan okkur, þarf ekki að skoða málið í samhengi?