ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Mér býður í grun að hæstv. forseti númeri ræðurnar til hægðarauka fyrir RÚV sem hugsanlega horfir á þessa útsendingu og merki við í kladdann til að geta birt nýjan Eurovision-lista á morgun yfir mínútur og númer. En það er önnur saga. Þetta er alveg hárrétt athugasemd hjá hv. þingmanni.
Þá kem ég enn að því hvar við stæðum ef ríkisstjórnarflokkarnir hefðu fengið sínu framgengt og búið væri að samþykkja tillöguna, áður en upplýsingarnar um orkupakka fjögur komu, áður en upplýsingarnar um sæstrenginn komu, áður en síðustu upplýsingar frá Arnari Þór Jónssyni komu. Hvar stæðum við þá? Það er kannski þetta sem lá svona á að klára og eyða til þess öllum þessum nóttum við að reyna að koma í veg fyrir það að öllum þeim nóttum væri eytt í að reyna að grafa upp hvað það er sem vantar upp á að málið sé vel reifað.
Núna hins vegar eru komin það mörg atriði upp á borðið í þessu að við skulum setja þetta aftur í samhengi: Hvað ef búið væri að ganga frá málinu, það væri farið til ríkisstjórnarinnar og við sætum eftir að samþykktri tillögu vitandi það sem við vissum ekki fyrir tveim vikum síðan? Þetta held ég að sé mergurinn málsins og þetta held ég að sé ein stærsta ástæða þess, og þær eru margar og stórar, fyrir því að nú verði málið flautað út af í bili, tekið til hliðar, rannsakað og skoðað betur, m.a. þau áhrif sem hv. þingmaður minntist á, samhengi milli þriðja og fjórða orkupakka. Ég held að okkur sé alger nauðsyn (Forseti hringir.) á að gera þetta til að klára málið með einhverjum sóma.