149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við eEES-samninginn.

777. mál
[04:15]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágæta ræðu. Það er málefni sem mér finnst ekki hafa verið rætt nægilega og er mjög lítið rætt í þessu samhengi, þ.e. hvernig ríkisstjórnin hefur markaðssett þennan orkupakka hér innan lands. Ég vil meina að sú markaðssetning sé nokkuð blátt áfram. Það eru ákveðin slagorð sem hafa verið gegnumgangandi þegar kemur að markaðssetningunni af hálfu ríkisstjórnarinnar, eins og t.d. að orkupakkinn skipti engu máli og það sé búið að skoða þetta alveg nógu lengi. Það eru frasar sem hafa verið notaðir mikið af stjórnarliðunum: Orkupakkinn skipti ekki máli. Við erum búnir að skoða þetta alveg nógu lengi. Það er búið að svara öllum spurningum.

Þetta kaupir almenningur, held ég, þegar þessu er haldið fram nógu oft. Og þar hafa þeir fengið liðsinni fjölmiðla, eins og t.d. Ríkisútvarpsins, sem hefur að mínu mati ekki verið með nógu gagnrýna umfjöllun um þetta stóra og mikla mál. Þó eru fjölmiðlar að vakna svolítið til lífsins, finnst mér, núna á allra síðustu metrunum og vil ég t.d. þakka Morgunblaðinu og Viljanum, svo dæmi sé tekið. Það er þetta ójafnvægi að það er alveg greinilegt, og við sjáum það, að markaðssetningin hjá ríkisstjórninni er mun öflugri. Þeim gengur mun betur að koma þessu á framfæri en okkur, Miðflokknum, sem erum að reyna að sýna fram á það að þetta er óskynsamleg leið (Forseti hringir.) sem ríkisstjórnin er að fara. Ef hv. þingmaður gæti kannski aðeins komið inn á þennan aðstöðumun.