ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Að hluta til ætla ég að vera ósammála hv. þingmanni vegna þess að ég held nefnilega ekki að þjóðin hafi keypt fagurgalann. Það sáum við í gærkvöldi í sjónvarpsfréttum RÚV þar sem fulltrúar almennings, sem talað var við úti á götu, sögðu: Við viljum vita meira.
Það er hins vegar annað mál að auðvitað hafa ríkisstjórnarflokkarnir átt greiðari leið með upplýsingar sínar til almennings en við sem hér stöndum. Það er t.d. eitt sem ég held að ég hafi orðað hér í gærkvöldi eða í gær eða einhvern tímann, að sjónvarpsþáttur sem ég lenti í ásamt hæstv. utanríkisráðherra einhvern tímann í apríl, hefði orðið allt öðruvísi núna miðað við þær upplýsingar sem fram eru komnar núna sem ekki voru komnar fram þá. Og þá hefði kynning málsins í þeim þætti orðið með allt öðrum hætti en hún varð.
Ég er út af fyrir sig sammála því að auðvitað ætti ríkisfjölmiðillinn, sem kostar 4.000 milljónir af almannafé á ári, að hafa gengið fram fyrir skjöldu og kynnt málið frá báðum hliðum með vönduðum hætti. Auðvitað hefði hann að mínu mati líka átt að flytja þær fréttir héðan úr húsinu sem ekki vörðuðu númerið á ræðum eða lengdina á þeim eða hverjir væru búnir að tala mest og hverjir minnst og eitthvað slíkt, og í hvaða röð. Ég held að það hafi sáralítið að gera með innihald þriðja orkupakkans út af fyrir sig. Þannig að það hefði verið miklu nær fyrir ríkisfjölmiðilinn (Forseti hringir.) að flytja hér vandaða umfjöllun um það sem komið hefur á daginn í þessari umræðu.