ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Í byrjun þessa svars leyfi ég mér að vitna til orða fyrrverandi hv. þm. Sighvats Björgvinssonar, sem er ekki í Miðflokknum og hefur ekki verið það, og ég vænti þess nú ekki að hann gangi til liðs við okkur. Hann sagði: Ef orkupakki þrjú skiptir engu máli, af hverju erum við þá að eyða tíma í að ræða hann? Af hverju liggur þá svona mikið á að koma honum í gegnum þingið? Það er alveg laukrétt. Þannig að ég tek alveg heils hugar undir með þessum fyrrverandi hv. þingmanni.
Hins vegar er það sem hv. þingmaður sagði varðandi fjölmiðla. Það er alveg rétt, við eigum þó nokkuð marga vandaða fjölmiðlamenn. En nú skilst mér að það styttist í komu frumvarps í þingið, þar sem fjölmiðlar verði meira og minna á ríkisframfæri. Við höfum í sjálfu sér ekkert rosalega góða reynslu af því að ríkið sé að spandera miklum peningum í fjölmiðla. Nefni ég t.d. Ríkisútvarpið sem kostar rúma 4 milljarða af almannafé á ári sem landsmenn borga allir í þar til yfir lýkur. Ég hef ekki svo sem séð að þessi fjárfesting landsmanna skili sér í mjög vandaðri umfjöllun, t.d. hvað fréttir varðar eða skemmtiprógrömm. En það er nú önnur saga.
Vandi fylgir vegsemd hverri, þannig að það er vonandi að fjölmiðlamenn og fjölmiðlar yfirleitt geri sér grein fyrir því að ef þeir verða meira og minna ríkisstyrktir innan skamms hljóti það að gera meiri kröfur á hendur þeim um vandaða (Forseti hringir.) málsmeðferð og svo framvegis. Vonandi fáum við þá betri fjölmiðla.