ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Forseta rekur vonandi minni til þess að fyrir eins og tveimur nóttum var ég byrjaður að ræða um Kýpur og þá reynslu sem Kýpur hefur af lagningu sæstrengs eða áformum um lagningu sæstrengs sem nýst getur Íslandi, held ég, mjög vel við að leggja mat á þennan þriðja orkupakka, því að þar kemur sameiginleg orkumálastofnun Evrópusambandsins, ACER, mjög við sögu.
Kýpur er eyja. Ég fellst á það á sama hátt og Miguel orkumálastjóri fellst á það í sameiginlegri yfirlýsingu með hæstv. utanríkisráðherra að Ísland sé eyja, en fyrir vikið getur reynslusaga eða dæmi um Kýpur veitt okkur innsýn í hvers kunni að vera að vænta af hálfu þessarar Orkustofnunar, ACER, hvað varðar lagningu sæstrengs.
Nú stendur til að tengja Kýpur við Grikkland og reyndar við Ísrael líka með sæstreng, rafstreng, í gegnum Krít annars vegar og svo beint til Ísraels. Það er, eftir því sem ég kemst næst, ekkert sérstaklega umdeilt mál á Kýpur. Ég held að þá eyju skorti raforku umtalsvert meira en okkur hér á Íslandi. En það sem er áhugavert við dæmið um Kýpur er hvernig haldið hefur verið á málum. Það verkefni hófst með því að einkafyrirtæki, fjárfestar, lýsti áhuga á að ráðast í lagningu sæstrengs. Um leið og það lá fyrir og fjármögnun hafði verið tryggð — þetta er sérstaklega áhugavert, herra forseti, með tilliti til fréttar Sunday Times núna um helgina um fyrirhugaða lagningu sæstrengs til Íslands — blandaði ACER sér í málið, enda kemur fram í reglum þeirrar stofnunar að það skuli tafarlaust tilkynnt þegar fyrir liggur áhugi fjárfesta og fjármögnun sem geti leitt til tengingar yfir landamæri og skuli það tafarlaust tilkynnt til ACER svoleiðis að stofnunin geti haft umsjón með eða fylgst með framgangi verkefnisins og tryggt að engar hindranir mæti verkefninu, engar óeðlilegar hindranir, hvort sem þær eru viðskiptalegs eðlis eða pólitísks eða tæknilegs. Þetta var tilkynnt til ACER og ACER hafði í raun eftirlit með framgangi þessa máls.
En svo gerðist áhugaverður hlutur núna nýverið. Þetta verkefni mun, að því er virðist, hafa komist í einhvers konar uppnám, vegna þess að fjárfestar sem höfðu ætlað sér að ráðast í lagningu þessa sæstrengs lögðu í fyrstu a.m.k. óhóflega áherslu á að byggja upp raforkukerfi í kringum Aþenu að mati ACER. Þetta taldi ACER ganga gegn því sem lagt hafði verið upp með og þar af leiðandi væru þessir fjárfestar að einhverju leyti að fyrirgera þeirri fyrirgreiðslu sem þeir hefðu notið af hálfu þessarar stofnunar. Síðustu fréttir eru þær að þetta mál sé enn í ágreiningi vegna þess að ACER leggur svo mikla áherslu á að menn forgangsraði á þann hátt að þeir tryggi þessa tengingu yfir landamæri, tryggi tengingu við eyjuna Kýpur.
En þess er einmitt sérstaklega getið á verkefnasviði ACER, með tilliti til þriðja orkupakkans, að tengingar við svæði sem áður hafa verið einangruð, til að mynda eyjar, skuli vera í forgangi.
Við getum rétt ímyndað okkur hvort tenging við þá miklu umhverfisvænu endurnýjanlegu orkuframleiðslu sem er á Íslandi myndu ekki teljast forgangsverkefni af hálfu þessarar stofnunar, auk (Forseti hringir.) þess að falla undir þann möguleika að geta sótt styrki til Evrópusambandsins.