ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Auðvitað eigum við að hlusta á verkalýðshreyfinguna í þeim efnum. Verkalýðshreyfingin í landinu, stóru verkalýðsfélögin, ASÍ, VR, hafa lýst yfir andstöðu sinni við þennan orkupakka, við innleiðingu hans, og það eru réttmætar áhyggjur. Þetta eru gríðarlega stór samtök með mjög marga félagsmenn, þúsundir félagsmanna, og auðvitað á að hlusta á raddir þeirra. Það gera stjórnvöld ekki. Verkalýðsfélögin hafa náttúrlega áhyggjur af umbjóðendum sínum, hækkun á raforku til heimilanna, og síðan atvinnuástandinu, þ.e. hvort orkupakkinn geti orðið til þess að hér verði umtalsverð fækkun starfa, til að mynda í iðnaði. Á því hefur ekki verið gerð nein athugun. Það hefur ekki verið gerð nein rannsókn á því hver áhrif orkupakkans verða á t.d. iðnaðinn í landinu.
Það er sjálfsögð og eðlileg krafa þegar ríkisvaldið fer fram á þennan hátt, innleiðir orkupakka sem kemur til með að hafa veruleg áhrif til framtíðar, að gerð sé einhvers konar greining, við notum orðið sviðsmyndagreining í því sambandi, á áhrifunum. Það hefur ekki verið gert sem þýðir að málið er ekki nægilega vel unnið.
Þetta er kjarni málsins, herra forseti, og þess vegna á að sjálfsögðu að fresta málinu og fara miklu dýpra yfir áhyggjur (Forseti hringir.) þeirra aðila sem ég hef greint frá.