ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Varðandi þennan lagalega fyrirvara sem leit hefur staðið yfir á hafa fræðimenn sagt að hvernig sem þessi fyrirvari er eða hvaða upplýsingar þeir virðast hafa haft á sínum tíma — nú hef ég reyndar þann fyrirvara á að ég er ekki viss um að þeir hafi allir séð endanlega útgáfuna af fyrirvaranum, hann er væntanlega bara til heimabrúks. Síðan hafa a.m.k. fjórir lögmenn tjáð sig, eins og ég hef nefnt áður, og sagt að ekkert hald sé í þessum fyrirvara, hvernig sem hann er og hvar sem hann er, gagnvart aðilum sem myndu vilja fara í mál við ríkið eða undirstofnanir eða stofnanir okkar, vilji þeir fara í sæstrengsleiðangur á sinn kostnað en við reynum að standa í vegi fyrir þeim.
Það er eitt. Hitt er vitanlega alvarlegra sem hv. þingmaður spurði um, að við fáum ekki upplýsingar um þennan fjórða orkupakka, hver áhrif hans eru. Í spurningum þeim er ég beindi til utanríkisráðuneytisins spurði ég um þetta, spurningarnar voru sex eða sjö, held ég, eitthvað slíkt. Þeim var svarað almennt, en hins vegar var sagt að starfshópur væri að störfum og eitthvert samráð haft og eitthvað svoleiðis. Af hverju fáum við ekki að sjá þetta? Af hverju fáum við t.d. ekki að sjá ef búið er að vinna einhver minnisblöð eða lögfræðiálit um þennan fjórða orkupakka um áhrif hans? Er búið að því? Við fáum ekki einu sinni svör við slíkum spurningum. Hefur stjórnarmeirihlutinn fengið einhverja kynningu á þessum fjórða orkupakka og áhrifum hans, samþykki hann þann þriðja? Við fáum ekki svör við þeirri spurningu.
Það hefur einfaldlega ekki neinu verið svarað af því sem við höfum verið að spyrja um, jafnvel þó að við höfum bent á það, svo sannarlega, með réttmætum hætti, því að miklir hagsmunir eru í húfi fyrir land og þjóð.
Þetta er mjög sérstakt, hv. þingmaður, hvernig að þessu máli er staðið.