149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:20]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hvað þýðir það fyrir framtíð orkumála á Íslandi að innleiða bæði orkupakka þrjú og fjögur? Það er vitað og við sjáum það. Ef við lesum þá stuttu kynningu sem er á vefsíðu Evrópusambandsins um orkupakka fjögur sjáum við að ákveðnar breytingar verða gerðar. Hvað þýðir það fyrir okkur? Er það virkilega þannig að alþingismenn vilja ekki vita það, að fylgjendur þessa máls vilja ekki kynna sér hann, að þeim finnist betra að afgreiða þetta mál og hitt komi þá einhvern tímann?

Það er óábyrgt að hugsa þannig og vinna þannig. Það er óábyrgt að vilja ekki gera sér grein fyrir heildaráhrifunum þegar það er hægt. Ef við værum hins vegar, herra forseti, að tala um eitthvert mál sem við vitum að er einhvers staðar við sjóndeildarhringinn, segjum bara orkupakki tíu, er ekki hægt að ætlast til þess að menn geti kynnt sér hann ef það er ekkert búið að vinna í slíku, ef það er ekki búið að kynna innihaldið eða breytingarnar. Við höfum hitt hins vegar fyrir framan okkur í dag. Það er hægt að sjá heildaráhrifin og mér finnst mjög sérstakt þegar stjórnmálamenn stíga upp og segja að þetta séu óskyldir hlutir, þetta sé afgreitt í einhverjum boxum eða bitum þegar heildaráhrifin eru það sem skiptir máli og það sem mun skipta okkur máli.

Ef við hefðum þá sýn á alla vinnu okkar á Alþingi, hvort sem það eru lagafrumvörp eða þingsályktunartillögur, að horfa aðeins á akkúrat plaggið sjálft, ekki hvaða áhrif það hefur á önnur lög, værum við í vondum málum.