ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Þetta er mjög sérstakt mál að mínu mati, að haldið skuli vera frá okkur, ef svo má að orði komast, upplýsingum um fjórða orkupakkann vegna þess að þær liggja fyrir. Noregur hefur fengið þær upplýsingar og það er bara lágmarkskrafa þegar svona stórt mál er til umfjöllunar í þinginu að allar upplýsingar liggi fyrir. Við Miðflokksmenn höfum marghamrað á því í þinginu að það vanti mikilvægar upplýsingar, og þess vegna höldum við þessari umræðu áfram. Við erum að kalla eftir upplýsingum. Við erum að kalla eftir því að aðrir þingmenn taki þátt í umræðunni. Við óskuðum eftir því að utanríkisráðherra kæmi hér sérstaklega og hann gerði það en hins vegar var ósköp lítið að græða á þeim svörum sem hann veitti okkur. Mörg hver voru loðin og sumu svaraði hann hreinlega ekki.
Þetta eru vinnubrögð sem ganga ekki og maður spyr sjálfan sig: Hver er tilgangurinn? Hvers vegna er verið að halda upplýsingum frá okkur? Hvers vegna sjá stjórnvöld ekki hag sinn í því að allt liggi fyrir? Það hlýtur að vera hagur stjórnvalda að málefnið sé vel upplýst, ekki vilja þau vera sökuð um það á síðari stigum að hafa leynt mikilvægum upplýsingum sem geta skipt verulegu máli. Sá grunur læðist að manni að það sé hreinlega verið að halda upplýsingum frá þingmönnum og það kann ekki góðri lukku að stýra.
Kjarni málsins er sá að tengslin milli orkupakka þrjú og fjögur, eins og hv. þingmaður hefur haldið góðar ræður um, eru ótvíræð. (Forseti hringir.) Það eru ótvíræð tengsl þarna á milli sem verður að skýra betur og fá allar upplýsingar um.