149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[05:27]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að fara svona vel yfir það með okkur hversu mikilvæg tengslin eru á milli þriðja og fjórða orkupakka. Þetta er eitt af þeim atriðum sem hefur ekkert verið rætt af hálfu stjórnarliða, eins og það sé hreint og beint aukaatriði í huga þeirra. Það vekur að sjálfsögðu furðu og upp koma vangaveltur þess efnis að þarna sé verið að forðast það að ræða viðkvæm málefni í tengslum við þennan orkupakka, sem er augljóslega að þetta valdaframsal er innsiglað endanlega í orkupakka fjögur. Það er óþægilegt í augum stjórnarliða, eitthvað sem þeim hugnast greinilega ekki og þess vegna heldur ríkisstjórnin spilunum þétt að sér. En það er bara sjálfsögð og eðlileg krafa að þingmenn séu upplýstir um allar hliðar málsins. Það er ekki hægt að taka upplýsta ákvörðun, og það á við um alla þingmenn hér, nema fyrir liggi allar upplýsingar. Auðvitað vekur það sérstaklega athygli í því sambandi, herra forseti, ef maður minnist á þingmenn, að stór hluti þingmanna hefur ekki tjáð sig nokkurn skapaðan hlut um þetta stóra mál sem sýnir að almenningur (Forseti hringir.) á þá kröfu að þingmenn séu vel upplýstir. Þetta er jú, eins og við þekkjum, þingræði sem skiptir máli í lýðræðisríki.