149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:32]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þetta mikilvæga atriði í umræðunni, áhrifin á heimilin í landinu. Það er náttúrlega mjög sérkennilegt, eins og hv. þingmaður nefndi hér réttilega, að við skulum vera að fara í þessa vegferð hér og nú án þess að hafa orkustefnu í landinu og án þess að hafa skoðað hagfræðileg og efnahagsleg áhrif þessarar innleiðingar á samfélagið. Það verður bara að segjast eins og er að það eru engan veginn nógu vönduð vinnubrögð og í raun og veru má segja að það séu ámælisverð vinnubrögð því að auðvitað þurfum við að vita hver áhrifin verða.

Því hefur statt og stöðugt verið haldið fram af stjórnarliðum að innleiðing þessa orkupakka skipti ekki máli. Að því leytinu til er það rétt hjá stjórnarliðum að meginákvæði þessarar tilskipunar virkjast með sæstreng. Stjórnarliðar hafa sagt að það sé ákvörðunarvald Alþingis að leggja hann. Ég held að það sé búið að sýna fram á það hér í ræðum og við höfum séð það bæði í ræðum og ritum fræðimanna að það eru rök sem ekki munu halda. Við sjáum að undirbúningur sæstrengs er á fullu, fréttir um að slíkur sæstrengur sé fjármagnaður þannig að það er bara spurning um eitthvert árabil þar til það verður að veruleika og þá verður ekkert aftur snúið. Þá höfum við ekki yfirráð yfir þessum málum vegna þess að við sóttum aldrei um varanlega undanþágu. Það er það sem við höfum lagt áherslu á (Forseti hringir.) í málflutningi okkar í Miðflokknum.