149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:34]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þetta er mjög rétt og ég þakka fyrir svarið. Ítrekað hefur komið fram ákall frá almenningi um upplýsingar og kynningu á því hvert við séum að stefna. Við sáum í fréttum í ríkissjónvarpinu í gærkvöldi viðtöl við fólk sem óskaði eftir frekari upplýsingum. Við verðum eiginlega að taka undir með því fólki að leggja ætti töluverða áherslu á það.

Ég get tekið undir hitt atriðið sem hv. þm. Birgir Þórarinsson nefndi í sambandi við sæstrenginn, það er vissulega rétt að þar eru rök sem ekki munu halda. Hitt er annað mál að ég held að við gerum okkur öll grein fyrir því að slíkur sæstrengur verður lagður til landsins, en þá er mikilvægt að það sé á okkar forsendum en ekki á forsendum einhvers annars eða með annað í huga en það sem hentar okkur best, hvernig við getum staðið vörð um grunnstoðirnar, eins og ég nefndi áðan.

Mig langar aðeins að velta upp spurningu hér í lokin: Hvað er það sem veldur því, að mati hv. þingmanns, að ekki hafi verið farið í ítarlega kynningu og að það hafi virkilega átt að setja málið í gegnum þingið hreinlega án efnislegrar umræðu? Ég vil lýsa því þannig því að við erum búin að læra mjög margt af því að tala í þessu máli og það eru alltaf að koma fram nýjar og nýjar upplýsingar.