149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:44]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni kærlega fyrir þessar upplýsingar. Mig langar að fara aðeins dýpra í þær og koma með nokkrar vangaveltur um pólitíkina í Noregi. Eins og hefur komið fram er það hægri Evrópuflokkur sem fer með forsætisráðuneytið í Noregi og þar með gefur það ákveðna línu, hvert skal stefna þar í landi. Það er töluvert merkilegt að heyra að þetta sé á svokölluðu ráðherraleveli þar sem jafnvel er búið að taka ákvarðanir með stuðningi Evrópusambandsins, þó það nú væri, og þar með hafi myndast þrýstingur á að allt þetta regluverk fari fljótt og hratt í gegn. Það er ekkert skrýtið að það sé ólga í Noregi þar sem við vitum að það er a.m.k. einn stjórnmálaflokkur og svo er stærsta verkalýðshreyfingin þar mjög andsnúin þessum fyrirætlunum og hefur m.a., ef ég hef tekið rétt eftir, sent bréf hingað til lands til að leggja áherslu á að okkur beri að staldra við. Það sem ég er að inna eftir sérstaklega er hvort þingmaðurinn geti farið aðeins dýpra í skilgreininguna á því hvað er í gangi hjá Norðmönnum og hvert ráðherrar ætli með því, hvort það sé virkilega þannig að búið sé að múlbinda íslenska ráðherra til að fara í þessa vegferð og þar liggi eitthvað ósagt.