ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Það er erfitt að rýna í og greina hvað er ósagt í þessum efnum. Við erum í þannig umhverfi að stundum þarf að reyna að lesa á milli línanna. En sú klásúla sem fylgir þeim upplýsingum sem lagðar voru fram í utanríkismálanefnd er þeirrar gerðar að allt bendir til þess að Evrópusambandið og norsk stjórnvöld leggi gríðarmikla áherslu á að þetta klárist. Það setur málið síðan í það samhengi sem auðvitað blasir við að í haust, í september, verður tekið fyrir mál í stjórnlagadómstól Noregs þar sem kveðið verður upp úr um það hvort innleiðingin hafi verið gerð með forsvaranlegum hætti með tilliti til stjórnarskrár. Norðmenn gerðu, eins og við þekkjum, eina átta fyrirvara við innleiðinguna og var það forsenda þess að málið kæmist í gegnum norska Stórþingið. Svo virðist enn sem komið er að ekkert hafi verið gert með þá fyrirvara. Á ýmsa þeirra hefur ekki reynt enn þá en hvað varðar þá sem eitthvað hefur reynt á og þá sem falla undir bréfaskriftir þar sem óskað hefur verið staðfestingar frá Evrópusambandinu hefur engu verið sinnt í eina 14 mánuði.
Ef við skoðum þetta heildstætt, það að stjórnvöld í Noregi virðast leggja ofuráherslu á þetta, Evrópusambandið sömuleiðis, síðan svarar Evrópusambandið ekki tilskrifum fyrirvaranna, þá bendir allt til þess að skynsamlegt sé að halla sér aðeins aftur og skoða stóru myndina og fresta þessari vinnu.