149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú nær sólin klukkunni einhvern veginn alveg, en það reynir ekki á það strax. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Sú afstaða sem virðist koma fram, séu þessi sjónarmið tiltekins fulltrúa Norðmanna rétt og rétt eftir höfð, er þeirrar gerðar að í þeim endurspeglast nokkurt oflæti. Ég hef ekki skoðað þessi ummæli sjálfur, hef heyrt þau endurómuð. En ef þetta er afstaða aðila sem hafa ráðandi stöðu í umhverfi Norðmanna skilur maður ef við þykjum helst bara vera að þvælast fyrir áframhaldandi hagsmunum Norðmanna einna og sér.

Í samstarfi eins og þessu verða menn að mætast. Auðvitað verður alltaf einhver aflsmunur, eins og við sjáum í alþjóðasamstarfi sem við tökum þátt í, en varðandi þá nálgun að við séum einhvers lags farþegar, á ensku „free riders“, eins og það er stundum kallað, verð ég að viðurkenna að ég kann því heldur illa. Ég vona að þetta sé tímabundin afstaða sem byggist á einhverjum pirringi sem við höfum ekki orsakað.