149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[06:58]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég verð að segja að ég er mjög hissa á yfirlýsingum þessa ágæta álitsgjafa. Hann hætti sér þarna út á pólitískt svið sem er að mínu viti afar varasamt og mjög sérstakt. Ég minnist þess ekki að hafa séð það í alþjóðasamskiptum að menn setji það fram svona blákalt að ein þjóð, sem er fullgildur aðili að samningi eins og EES-samningnum, hafi einhvers konar aukahlutverk gagnvart þjóð sem er stærri og fjölmennari. Ég hefði haldið að allir væru þarna á jafnréttisgrundvelli.

Síðan bætir Carl Baudenbacher við og segir í álitsgerð sinni, með leyfi forseta, að Íslandi beri skylda til að sýna Noregi og Liechtenstein hollustu í EES-samstarfi.

Þetta er að mínu viti afar sérstök framsetning en styður hins vegar það sem hv. þingmaður nefndi hér réttilega, að það er alveg ljóst að við erum undir þrýstingi frá Noregi. Það kann ekki góðri lukku að stýra að mínu viti, herra forseti, að við séum beittir einhverjum þrýstingi af þessum toga. Það eru ekki eðlileg samskipti vinaþjóða, það er alveg klárt í mínum huga hver viðbrögð okkar ættu að vera við þessu. Ég tel að við ættum að bregðast við þessum yfirlýsingum með einhverjum hætti og sannreyna þær. Ég held að það væri bara nauðsynlegt.