149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:00]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir andsvarið. Ég verð að viðurkenna að ég er eiginlega enn þá á þeim stað að ég vona að þetta sé einhver misskilningur, að þessi afstaða hafi ekki komið fram heldur einhver önnur, en hún hafi bjagast í þýðingu eða áframflutningi. Þetta er margra hluta vegna óhollt fyrir góð og áframhaldandi samskipti ef sú afstaða er raunveruleg að Norðmenn líti á veru Íslands og Liechtensteins í þessu samstarfi með þeim hætti sem þarna er lýst, þ.e. ef maður á að njóta trausts sem stóri bróðir verður maður að ávinna sér það með því að haga sér eins og stóri bróðir. Eina leiðin til að hafa afgerandi stöðu, að mörgu leyti yfirburðastöðu, í svona samstarfi er að nýta sér ekki aflsmuninn sem mögulega er til staðar. Ef nú berast meldingar um að afstaða Norðmanna sé að breytast einhvern veginn í þá veru væri það mjög miður og kæmi á óvart.

Ég ætla bara að ítreka það sem ég sagði í fyrra andsvari, ég ætla að leyfa mér um sinn að vona að þetta sé byggt á einhverjum misskilningi, rangtúlkun eða hreinlega á persónulegri afstöðu aðila sem endurspeglast ekki í stjórnmálalegri afstöðu norskra stjórnvalda gagnvart íslenskum.