ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Ísleifssyni fyrir ræðuna. Hún er mjög athyglisverð sú grein sem hann vitnaði til í ræðunni eftir Þorstein Pálsson sem sér þarna að aðstæður hafa skipast þannig að nú sé umsókn eða inngöngu í ESB lýst í nýju ljósi miðað við þær aðstæður sem uppi eru núna í þessu orkupakka þrjú máli og tæknilega séð sé um möguleika að ræða. Er það svolítið merkilegur vinkill í stöðu málsins nú um stundir, við getum sagt í augnablikinu, þ.e. sú spurning sem ræðumaður varpaði fram um hvort flokkar núverandi ríkisstjórnar væru þá tilbúnir að skoða þann möguleika þar sem enginn þessara flokka hefur sýnt áhuga á inngöngu í ESB hingað til. Margt hefur breyst á stuttum tíma undanfarið. Mig langar því að spyrja þingmanninn þeirrar sömu spurningar og hann kastaði út í kosmosið fyrir nokkrum mínútum: Getur þingmaðurinn séð það að svo gætu mál skipast að við færum að skoða þann möguleika, þ.e. ríkisstjórn Íslands, að sækja um inngöngu í ESB á ný?