ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ja, spurningin er a.m.k. áleitin í ljósi greiningar Þorsteins Pálssonar. Eftir að Þorsteinn Pálsson lét af stjórnmálaþátttöku hefur hann fjallað mjög mikið um þjóðmál á opinberum vettvangi, ritað fjölda greina, var ritstjóri dagblaðs um árabil og ritar stundum, hefur mér sýnst, greinandi pistla á vefsíðu þessarar sjónvarpsstöðvar, Hringbrautar. Hann er kunnur að djúpsæi í greiningum sínum og býr auðvitað að mikilli þekkingu og reynslu.
Mig langar að vitna aðeins nánar í einn stað í pistli hans til að svara sem best andsvari hv. þingmanns. Hann ræðir m.a. um andstöðu ritstjóra Morgunblaðsins — hann segir um þá, með leyfi forseta:
„Andstaða þeirra við fulla aðild er einlæg og þeir vilja þar af leiðandi ekki styðja neitt það mál sem opnað getur á hana.“
Hann segir, eins og ég vitnaði til áður:
„… umræðan um fulla aðild er nú miklu opnari en áður var. Mikilvægt er að Evrópusinnar hagnýti sér þessa opnun.“
Hann er í raun og veru að segja, ef maður má leyfa sér að álykta, að ríkisstjórnin undir forystu Vinstri grænna og með þátttöku Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé að gefa Evrópusinnum, þeim sem vilja fulla aðild, alveg sérstakt nýtt tækifæri til sóknar í því máli.