ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Það er nefnilega það, ég þakka þingmanninum fyrir svarið og þessar vangaveltur um stöðuna. Talað hefur verið um það við innleiðingar frá ESB í gegnum EES-samninginn að við séum alltaf að færast — eða margir halda því fram að við séum að nálgast það að ganga í rólegheitunum inn í ESB, en það eru bara skoðanir einhverra manna úti í bæ. Maður getur stundum tekið undir það.
Það eru þá tíðindi í mínum huga ef svo skyldu skipast veður í lofti að menn færu að hugsa þessa stöðu alvarlega í ljósi þeirrar staðreyndar hvernig ríkisstjórnin er samansett í dag.
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra þess tíma, núverandi meðlimur í Viðreisn, er skýrt dæmi um þá sem hafa gengið úr Sjálfstæðisflokknum, m.a. vegna þeirra skoðana sinna að við eigum að ganga í ESB. Mér finnst þetta því vera enn ein uppákoman í umræðunni um orkupakka þrjú málið sem menn, sem fylgjast mikið með stjórnmálunum og hafa skýrar skoðanir á sínum málum, velta upp nú þegar þessi umræða hefur þroskast og þróast undanfarna daga og vikur.