ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og ætla núna að ljúka umfjöllun minni um raforkusamninga við stóriðjuna og tengslin við þriðja orkupakkann í þeim efnum vegna þess að þriðji orkupakkinn, þessi tilskipun nr. 3 í raforkumálum Evrópusambandsins, hið sameiginlega markaðssvæði, hefur að mínu viti áhrif á raforkusamninga við stóriðjuna. Við sáum það, eins og ég rakti í fyrri ræðu, að nú dró til tíðinda í vikunni þegar Landsvirkjun tilkynnti að þeir hefðu náð samningum við Elkem á Grundartanga, þar sem hafði orðið veruleg hækkun á raforku til fyrirtækisins og höfðu forsvarsmenn fyrirtækisins reynt um langt skeið að ná samningum við Landsvirkjun.
Maður veltir fyrir sér: Hver er stefna Landsvirkjunar í þeim efnum? Ef niðurstaðan er sú að hækka alla þessa raforkusamninga er sjálfsagt og eðlilegt þegar að því kemur að þeir eru lausir að við reynum að hækka verðið, en það verður hins vegar að fara varlega að og reyna að ná samkomulagi þar sem báðir aðilar eru sæmilega sáttir vegna þess að sú staða getur komið upp, eins og ég nefndi áðan, að þessi stóriðjufyrirtæki, álverin, eins og Elkem, Ísal, Alcoa, sjái ekki hag sinn í því að vera hér lengur vegna raforkuverðs og þá eru mörg þúsund störf í hættu. Það verður að segjast eins og er.
Það lítur út fyrir að þessar aðgerðir eða stefna Landsvirkjunar ógni á vissan hátt störfum og lífsviðurværi þúsunda starfsmanna í orkufrekum iðnaði með því að krefja þessi fyrirtæki um raforkuverð sem gæti kippt undan þeim grundvellinum til frekari reksturs og uppbyggingar og atvinnusköpunar í landinu.
Svo er það náttúrlega merkilegt ef Landsvirkjun er búin að eyða háum fjárhæðum í að kanna kosti og galla þess að hingað sé lagður sæstrengur þegar síðan er hægt að vega að þeim orkufreka iðnaði með gríðarlegum hækkunum á raforkuverði og segja í framhaldinu að við verðum að fá sæstreng vegna þess að það sé svo mikil umframorka í kerfinu.
Þetta er svolítið kaldhæðnislegt, herra forseti, en þetta gæti verið veruleikinn ef fram heldur sem horfir. Það er enginn að tala um að gefa raforkuna til þessa orkufreka iðnaðar, alls ekki, enda er ekki að sjá að við séum að því þegar horft er á aðkomu Landsvirkjunar. Hún er góð og fjárhagsstaða Landsvirkjunar með ágætum, sem við fögnum að sjálfsögðu.
Þetta eru vangaveltur sem ég hef komið á framfæri í einum þremur ræðum og ætla ég að ljúka umfjöllun minni um þetta að sinni. Það verður einfaldlega að stíga varlega til jarðar í þessum efnum og þetta eru bein tengsl við þennan orkupakka. Það er verið að opna leið, leggja í alla undirbúningsvinnuna fyrir væntanlegan sæstreng sem við höfum fengið fréttir af í þessari viku að er langt komin hvað fjármögnun og annað slíkt varðar. Aðalatriðið í (Forseti hringir.) mínum huga í þeim efnum er að við förum ekki fram úr okkur þegar kemur að samningum við stóriðjuna um raforku.