149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:30]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðuna. Eins og kom fram í ræðu þingmannsins hefur honum verið nokkuð tíðrætt, að sjálfsögðu, um orkuverð til neytenda og þær breytingar sem urðu á raforkuverði eftir fyrri orkupakka, eitt og tvö, og veifaði hérna reikningum því til sönnunar. Nú minntist þingmaðurinn á það í ræðu sinni að Landsvirkjun hafi náð raforkusamningi við Elkem á Grundartanga með nýjum raforkusamningi og var með, að mér skildist, vangaveltur um breytta stefnu Landsvirkjunar í þá átt eða undirbúning að því.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort Landsvirkjun hafi eitthvað breytt um stefnu í sambandi við raforkumál til neytenda, eða er þetta einhvers konar undanfari þess að það muni breytast þegar og ef orkupakkinn verður samþykktur?

Mikið hefur verið talað um hækkandi orkuverð í kjölfar þessa samnings. En þá hafa menn sagt á móti að það sé ekki hækkandi raforkuverð heldur gjöld vegna kostnaðar sem hlýst af eftirliti og þjónustu og öðru slíku sem að sjálfsögðu leggst ofan á raforkureikninginn sem slíkan, þannig að upphæðin verður hærri, að sjálfsögðu.

En spurningin er: Er þingmaðurinn að tala um að breytingin hafi átt sér stað eða að þetta sé undanfari breytinga?