ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég held einmitt að þarna sé að verða ákveðin stefnubreyting og jafnvel undanfari þess að farið verði að þrýsta mjög á hækkanir á raforkutöxtum til stóriðjunnar. Yfirlýsingar hafa komið fram þess efnis, m.a. frá stjórnarliðum, að þetta styrki stöðu okkar gagnvart fyrirtækjunum. Það hlýtur þá að vera með þeim hætti að þeir sömu aðilar, þ.e. stjórnarliðarnir sem halda þessu fram, sjái þá fram á að hægt verði að selja rafmagnið erlendis á mun hærra verði. Þá er það nú svolítill tvískinnungur í málflutningi stjórnarliða þegar þeir halda því fram að þriðji orkupakkinn skipti ekki neinu máli. Hann skiptir máli, þ.e. innleiðing hans skiptir máli vegna þess að hún leggur grunninn að því sem raforkufyrirtækin sjá fyrir sér, þ.e. að geta selt raforkuna erlendis.
Ég held að þeir samningar sem tekið hefur langan tíma að ná við Elkem á Grundartanga sýni það einmitt að komin er meiri harka í þessi mál hvað þetta varðar, ef má orða það svo. En við erum um leið að taka mikla áhættu, því að við þekkjum það að árið 2015 munaði ekki miklu að t.d. álverið Ísal hefði hætt starfsemi. Við verðum því að hafa þetta í huga þar sem mörg þúsund störf eru í húfi og útflutningstekjur.