149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[07:40]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Takk, forseti. Mér þykir það sem hv. þingmaður færði hér fram athyglisvert vegna þess að Landsvirkjun hefur undanfarin ár verið eins og ríki í ríkinu. Það hefur m.a. birst í því að sú stofnun hefur unnið ötullega að undirbúningi þess að hér verði lagður sæstrengur. Ég veit ekki í umboði hvers. Þessi stofnun, eins og fleiri stofnanir, er með stjórn sem er jú skipuð fólki sem valið er af stjórnmálaflokkunum, en ég veit ekki til þess að henni hafi verið falið með einhverjum hætti að undirbúa lagningu sæstrengs. Þess vegna lagði ég fram fyrirspurn um kostnað stofnunarinnar síðustu tíu ár af því að undirbúa sæstreng og sundurliðun þeirrar greiðslu.

Ég er ekki talsmaður þess að stóriðjan á Íslandi gangi í fjárhirslur landsmanna. En það er erfiður ballans, ef ég get orðað það þannig, að finna verð sem báðir aðilar geta sætt sig við. Sú niðurstaða náðist því miður ekki. Þetta hefur skelft margan manninn í Norðvesturkjördæmi, m.a. verkalýðsforingja og fleiri, og það er náttúrlega alvarlegt mál ef við förum að tapa fyrirtækjum sem þar eru og víðar á landsbyggðinni. Það er merkilegt að þetta skuli gerast á vakt iðnaðarráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem er frekar hallur undir stóriðjustarfsemi. En ég bið hv. þingmann að fara yfir það með okkur hver yrðu hugsanleg áhrif af því ef t.d. þessi verksmiðja myndi í kjölfar hækkunar loka og hætta starfsemi.