ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er rík ástæða til að hafa áhyggjur af þessu máli og ég hjó eftir því sem ég sá á netinu í gær eða fyrradag, að í fyrra var álverið í Straumsvík rekið með verulegum halla sem skiptir milljörðum. Þótt ég sé ekki talsmaður þess að stórfyrirtæki í eigu útlendinga gangi frjálslega um ríkissjóð hlýtur það að vera hagur okkar allra að þessi fyrirtæki starfi áfram.
Það kom reyndar fram í svari hæstv. forsætisráðherra í umræðum í þinginu um daginn, hún sagði eitthvað á þá leið að stóriðjan hefði að mörgu leyti bjargað okkur eftir hrun með útflutningstekjum o.s.frv. Öðruvísi mér áður brá en að forystumaður Vinstri grænna myndi vegsama stóriðju. En það er ekki svo langt síðan Vinstri græn stóðu fyrir uppbyggingu sem kölluð var meðalstóriðja, á Bakka við Húsavík. Þannig að auðvitað hafa þau eins og allir aðrir gert sér grein fyrir því hversu nauðsynlegt það er að renna fleiri stoðum undir atvinnulífið í landinu. Þess þá heldur er nauðsynlegt að tryggja að sú stoð standist ástand efnahagsmála og standist það raforkuverð sem henni er boðið upp á.
Ég myndi vilja að hv. þingmaður færi yfir það með okkur, af því að hann er Suðurnesjamaður, hvaða áhrif hann telur að það hefði ef álverið (Forseti hringir.) í Straumsvík myndi hætta eða draga saman seglin